4.5 C
Selfoss

Selfoss Karfa með meistaraflokk kvenna næsta vetur

Vinsælast

Selfoss Karfa hefur skráð lið til þátttöku í 1. deild kvenna á komandi keppnistímabili 2024/2025. Félagið hefur aðeins einu sinni verið með meistaraflokk kvenna en það var tímabilið 2013/2014 og því komin um 10 ár síðan síðast. Skrifað hefur verið undir samning við þjálfara liðsins og mun Davíð Ásgrímsson leiða liðið í vetur. Davíð hefur starfað við félagið undanfarin ár við góðan orðstýr með yngri flokka, m.a. lenti 7. flokkur karla undir hans stjórn í öðru sæti Íslandsmótsins á liðnum vetri. Liðið verður byggt á grunni kvenna af svæðinu auk þess að ungir og efnilegir iðkendur úr yngri flokkunum fá eflaust tækifæri til æfinga með meistaraflokk. Einnig hvetjum við áhugasamar konur til að setja sig í samband við þjálfara eða félagið ef þið hafið áhuga á að taka þátt í starfinu í vetur.

Það er félaginu gríðarlega mikilvægt að koma af stað meistaraflokki kvenna til að ungir og upprennandi körfuboltaiðkendur hafi enn fleiri flottar fyrirmyndir til að fylgjast með.

Selfoss karfa

Nýjar fréttir

JÓLAHÚFA GUMMA LITLA

Jólahugleiðing

Ævintýri á Jólaey