-9.7 C
Selfoss

Stórkostlegur árangur þrátt fyrir krefjandi aðstæður

Vinsælast

Mýrdalshlaupið fór fram í 11. skipti í Vík í Mýrdal laugardaginn 24. maí sl. Keppt var í 10 km og 21 km hlaupi en auk þess fór fram 3 km skemmtiskokk sem var vel sótt. Talsverð súld og þoka var yfir rásmarkinu í fjörunni í Vík þegar tæplega 400 keppendur lögðu af stað kl 11.00. Hlauphaldarar höfðu tekið ákvörðun um að breyta hlaupaleið lengra hlaupsins og sneiða framhjá efsta tindi Höttu til að tryggja öryggi þátttakenda í þokunni. Þegar líða tók á hlaupið hætti úrkoman og þokunni létti svo keppendur í 21 km hlaupinu fengu útsýni úr Höttuhlíðum á leið niður í Vík.

Þrátt fyrir nokkuð krefjandi aðstæður var hiti í fólki og árangur keppenda í ár hreint stórkostlegur, en ekki bara einn heldur tveir keppendur hlupu undir brautarmeti.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Guðni Páll Pálsson hlaupstjóri Mýrdalshlaupsins. Ljósmynd: Páll Jökull Pétursson.

Meðal keppenda voru þau Mari Järsk og Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands, en þau komu saman í mark í 10 km hlaupinu á glæsilegum tíma 1 klst og 16 mínútur, eftir að hafa hlaupið fjöruna og um Reynisfjall. Hlutskörpust í 10 km hlaupinu voru þau Sonja Sif Jóhannsdóttir á tímanum 53:14 og Sigurjón Ernir Sturluson á tímanum 41:23. Þess ber að geta að Sigurjón setti nýtt brautarmet, en Þórólfur Ingi Þórisson sem var í öðru sæti á tímaun 42:13 hlupu báðir undir gamla brautarmetinu.  Keppendur í 21 km hlaupinu hlupu norður Reynisfjall og yfir á Höttu austan við Vík, og voru þar hlutskörpust Nils Fischer 01:38:55 og Andrea Kolbeinsdóttir á tímanum 01.48.57.

„Þetta var bara geggjað, þó að veðrið hafi ekki verið það besta fannst mér það bara gera þetta skemmtilegra. Þetta er eitt af uppáhalds hlaupunum mínum hérna á Íslandi. Ég var búin að lofa þjálfaranum mínum hjá Fjallahlaupaþjálfun, þar sem það er bara vika í Evrópumeistaramótið í utanvegahlaupum, að fara bara á 90% krafti. Hann var ekkert mjög spenntur fyrir því að ég væri að fara í keppnishlaup svona stuttu fyrir stórmót, svo ég lofaði honum að fara bara á 90%, en ég gat bara ekki sleppt þessu. Ég hélt mig við 90% og mér leið bara rosalega vel allan tíman. Þetta er bara svo geggjað hlaup, ótrúlega vel skipulagt og ekki hægt að setja út á neitt, þetta er bara frábært.“ Segir Andrea glöð í bragði eftir hlaupið.

Andrea Kolbeinsdóttir sigurvegari kvenna í 21 km hlaupinu uppi á Reynisfjalli.Ljósmynd: Páll Jökull Pétursson.

Aðspurð hvernig Evrópumótið leggðist í hana segir Andrea: „Sérstaklega eftir þessa reynslu, þar sem næringin gekk vel og ég var að æfa mig að nota stafi, er ég bara ótrúlega spennt fyrir EM. Það er erfitt að segja til um einhver ákveðin markmið, en ég ætla að gera mitt allra besta og skilja allt eftir í brautinni og sjá hverju það skilar mér.“ En Andrea er ein skærasta vonarstjarna utanvegahlaupa á Íslandi um þessar mundir.

„Þetta var ótrúlega flott í gegn! Þetta var hugsað sem nokkuð hröð æfing fyrir EM sem er næstu helgi, en svo var Þórólfur Ingi Þórisson mættur á startlínuna svo þetta breytist úr því að vera þétt yfir í frekar þétt. Við pressuðum vel upp fyrstu brekkuna og maður fann alveg fyrir því að þetta tók vel í og við sigldum saman fyrstu 6 km. Þá fann ég að ég gat ýtt mér lengra og náði forskoti og var sterkari í síðustu hækkuninni áður en við tókum niðurhlaupið. Aðaltilgangurinn var að pressa upp og hamra vel niður og undirbúa fæturna fyrir EM. Þetta gekk vel og ég náði að rúlla mjög hratt og vel niður brekkuna. Og brautarmetið skemmtileg viðbót við reynsluna. Þó að veðrið hafi ekki verið það besta þá slapp þetta bara mjög vel til,“segir Sigurjón Ernir Sturluson sem setti nýtt brautarmet í 10 km brautinni með sigri sínum á laugardag.

Nils Fischer sigurvegari karla í 21 km hlaupinu uppi á Reynisfjalli. Ljósmynd: Páll Jökull Pétursson.

Framkvæmd hlaupsins gekk vel og öll umgjörð hlaupsins var til fyrirmyndar. Hlaupið er skipulagt og haldið af sjálfboðaliðum í góðgerðarskyni og eru ýmis félagasamtök sem njóta góðs af framkvæmd hlaupsins, meðal annars Ungmennafélagið Katla, Jaðarsportklúbburinn Víkursport, Björgunarsveitin Víkverji og Kvenfélagið Ljósbrá. Verslunin Eirberg er helsti samstarfs- og styrktaraðilli Mýrdalshlaupsins og fengu allir verðlaunahafar hlaupsins vinninga frá Eirberg.

Nýjar fréttir