9.5 C
Selfoss

Íslenska fyrir starfsfólk Sveitarfélagsins Árborgar hjá Fræðslunetinu

Vinsælast

Nýverið útskrifaðist hópur starfsfólks Sveitarfélagsins Árborgar úr starfstengdu íslenskunámi sem var samstarfsverkefni Fræðslunetsins og sveitarfélagsins.

Námskeiðið fór fram hjá Fræðslunetinu einu sinni í viku á vinnutíma og var í boði fyrir starfsfólk sem ekki hefur íslensku að móðurmáli. Samhliða námskeiðinu fengu þátttakendur aðgang að smáforritinu, Bara tala frá Akademías, sem er stafrænn íslenskukennari sem byggir á gervigreind og íslenskri máltækni. Á námskeiðinu var lagt upp með að styðja við notkun á Bara tala í starfstengdum aðstæðum og daglegu lífi. Þátttakendur lærðu einnig íslenska stafrófið, framburð og grunnorðaforða ásamt því að læra lestur og ritun einfaldra setninga með fjölbreyttum kennsluaðferðum. Áhersla var á talmál og starfstengdan orðaforða og notast var við Bara tala sem tæki til að æfa sig í framburði og setningum, skilja kaffistofuspjallið á vinnustöðum og auka sjálfstraust og öryggi í starfi. Leiðbeinandi var Sigþrúður Harðardóttir.

Nýjar fréttir