9.5 C
Selfoss

Nýr yfirlæknir á Bráðamóttöku HSU á Selfossi

Vinsælast

Brynja Kristín Einarsdóttir hefur tímabundið verið ráðin sem nýr yfirlæknir bráðamóttökunnar á Selfossi, frá 1. maí til 15. september.

Brynja kláraði árið 2019 læknanám við háskólann í Debrecen, Ungverjalandi og starfaði samhliða náminu m.a á bráðamóttöku Selfossi, sjúkrahúsinu Vogi og heilsugæslunni Hveragerði og Þorlákshöfn.

Að námi loknu hóf hún störf á sjúkrahúsinu á Akureyri og vorið 2020 tók við sérnám í bæklunarskurðlækningum á SAK. Tveimur árum síðar færði Brynja sig um set og hóf störf á bæklunarskurðdeild Landspítalans þar til hún byrjaði á bráðamóttöku HSU þann 1. mars s.l.

Nýjar fréttir