-1.1 C
Selfoss

Skipulagsmál og uppbygging í Árborg

Vinsælast

Uppbyggingin í Sveitarfélaginu Árborg hefur verið með ótrúlegu móti undanfarin ár og haft töluverð áhrif á samfélagið. Í því samhengi ber að horfa til bæði jákvæðra og neikvæðra áhrifaenda skiptir miklu máli í vaxandi samfélagi að skipulag og framtíðarsýn sé til staðar sem styður við slíkan vöxt.

Hvers vænta?

Það eru ákveðin forréttindi fyrir Sveitarfélagið Árborg að vera í þeirri stöðu að þrátt fyrir háa vexti og verðbólgu sé áhugi til uppbyggingar eins mikill og raun ber vitni. Trú fjárfesta á svæðinu er til staðar sem fyrr, og sést best á áhuga í nýlegum útboðum lóða til uppbyggingar. Er þar fyrst og fremst um að ræða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis en áhugi fyrirtækja til uppbyggingar atvinnustarfsemi hefur vaxið samhliða. Miðbærinn heldur áfram að byggjast upp, ný fyrirtæki hafa bæst í flóru svæðisins, nokkur hafa stækkað við sig og mörg áhugaverð verkefni í farvatninu.

Þegar horft er til uppbyggingu íbúða og þróunar íbúafjölgunar þarf að líta til fleiri þátta en prósentufjölgunar á ári hverju. Það er auðvelt að leggja fram áætlun um einhverja prósentu íbúafjölgunar á ári en ef aðrar áætlanir og framtíðarsýn bæjarstjórnar styður ekki við þá tölu getur endað illa gagnvart innviðum og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.

Á meðal þátta sem þarf að horfa til eru:

– Landrými til uppbyggingar
– Skipulag á landi og stefna bæjaryfirvalda gagnvart aðal- og deiliskipulagi
– Fjármunir til innviðauppbyggingar
– Eftirspurn eftir húsnæði á umræddu svæði og geta markaðarins til að mæta henni

Hvernig passar þetta Árborg?

Innan Árborgar er nægt landrými við alla þéttbýliskjarna sem styður við vöxt þeirra til framtíðar. Uppbygging á nokkrum svæðum í útjaðri Selfoss stendur yfir eða fyrir dyrum og til stendur að bjóða út nýjar götur á Stokkseyri og Eyrarbakka á þessu ári. Stefna D-listans er að uppbygging sé jöfn, stöðug og skynsamleg og taki mið af innviðum samfélagsins. Ef áætlanir sveitarfélagsins ganga eftir næstu 7-10 ár má búast við uppbyggingu um 2500 – 3000 íbúða auk fjölbreyttraratvinnustarfsemi. Mynd neðan úr húsnæðisáætlun sveitarfélagins 2024-2033 sýnir mögulega íbúaþróun og fjölda íbúða út frá lág-, mið- eða háspá ef tekið er mið af forsendum í dag.

 

Mynd: Húsnæðisáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024-2033.

Samræmi þarf að vera í skipulagsmálum, fjárhag og rekstri og annarri þjónustu sveitarfélagsins til að minnka hættu á að þjónusta skerðist eða skuldasöfnun verði óbærileg vegna uppbyggingarinnviða. Fasteignamarkaður hefur verið mjög virkur í Árborg og nærliggjandi sveitarfélögum og engar vísbendingar um að eftirspurn sé að dragast saman á næstu árum. Fjárfestar, framkvæmdaaðilar og verktakar á svæðinu eru öflugir og með getu til að byggja hagkvæmt og þannig viðhaldið framboði á nýjum eignum.

Hvernig getur vöxturinn gengið upp?

Að teknu tillit til þessara lykilþátta geta bæjaryfirvöld tengt þá saman sem verður til þess að vöxturinn verði stöðugur, skynsamlegur og staðist fjárhagslega. Þar skipta upplýsingar frá öllum fagsviðum sveitarfélagsins máli til að bæjarstjórn hafi sem best gögn við ákvarðanatöku ogstefnumörkun.

Sveitarfélög þurfa flest að styrkja sína tekjustofna til að standa undir daglegri þjónustu sem og uppbyggingu mikilvægra innviða. Þar hefur m.a. verið horft til svokallaðs “byggingarréttargjalds” sem greitt er til sveitarfélagsins í samræmi við byggingarheimildir á lóð. Slíkt gjald á að nýtast til fjárfestingar í innviðum. Mörg sveitarfélög hafa nýtt sér slíkt gjald á undanförnum árum líkt og Árborg gerir nú.

Samskipti sveitarfélagsins við framkvæmdaraðila er einnig mikilvægur þáttur. Þegar skipulögð eru stærri uppbyggingarverkefni þurfa bæði sveitarfélagið og framkvæmdaraðilinn að ganga í takt varðandi framkvæmdahraða, áfangaskiptingu og fleira. Huga þarf jafnframt að því að sveitarfélagið geti mætt þörfum um innviði og þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, heitt vatn og fleira í þeim dúr. Með skynsemi í rekstri að leiðarljósi eigum við betur með að sinna slíkri þörf.

Það eru spennandi tímar áfram í Sveitarfélaginu Árborg og lykilatrið að vel sé á málum haldið. Okkur eru allir vegir færir og hef ég óbilandi trú á samfélaginu okkar og uppbyggingu þess til framtíðar.

Bragi Bjarnason,
formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg

Nýjar fréttir