15.6 C
Selfoss

Innilaugin opnar í dag

Vinsælast

Það gleður marga að búið er að opna innisundlaugina í Þorlákshöfn eftir endurbætur en laugin er einkar vinsæl hjá fjölskyldufólki, með leiktækjum sem þau yngstu elska og notaleg fyrir mömmur og pabba.

Skipt var um gólfefni utan laugar og voru settar nýjar rennibrautir.

„Það er tilvalið að njóta aðventunnar og fara í saman í sund. Útilaugin verður sérstaklega upphituð á laugardögum í desember og verður jólastemning með jólatónum, jólaljóðum til lestrar í laug og epsom salti í gufunni sem hefur góð áhrif á húðina,“ segir í tilkynningu frá Ölfusi.

Nýjar fréttir