15 C
Selfoss

Fyrsta æfing á Stroke verkferli á HSU

Vinsælast

Þann 8. nóvember sl. var fyrsta æfing á nýjum verkferli á HSU. Ferillinn snýr að því að bæta móttöku sjúklinga með einkenni heilablóðfalls.

Í stað þess að sjúklingur sé keyrður beint til Reykjavíkur getur hann nú, miðað við ákveðnar forsendur, mættfyrst á HSU og farið í tölvusneiðmyndatöku. Í kjölfarið er metið í samráði við ráðgefandi taugalækni á Landspítala hvort sjúklingur fái segaleysandi lyf.

Sjúklingur er svo sendur á taugadeild Landspítala til frekari skoðunar. Með þessum nýja verkferli er mögulegt að spara dýrmætar mínútur sem geta haft áhrif á lífsgæði sjúklinga sem fá heilablóðfall.

Nýjar fréttir