-6.6 C
Selfoss

Uppbygging á Litla Hrauni

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra.

Í upphafi vikunnar kynnti ég áform um stórtækar umbætur í fangelsismálum, með uppbyggingu nýs fangelsis á Litla Hrauni, fjölgun rýma á Sogni og endurskoðun fullnustulaga.

Fangelsið á Litla Hrauni er fyrir löngu orðið barn síns tíma enda komið til ára sinna, tekið í notkun árið 1929. Fyrsta húsið sem var byggt var teiknað af Guðjóni Samúelssyni og stóð til að það yrði sjúkrahús fyrir Sunnlendinga. Það varð ekki raunin heldur keypti ríkið jörðina og allar götur síðan hefur Litla Hraun verið stærsta fangelsi Íslands og sinnt mikilvægu hlutverki innan fullnustukerfisins.

Síðasta vetur ákvað Alþingi að setja rúma tvo milljarða í endurbætur á Litla Hrauni. Við nánari skoðun var ljóst að ekki svari kostnaði að setja svo mikið fé í húsakostinn og að vandlega íhuguðu máli var talið skynsamlegra að byggja nýtt fangelsi frá grunni við hlið núverandi fangelsis.

Við uppbyggingu nýs fangelsis verður byggt á nútímaþekkingu á sviði betrunar og öryggismála, með hagsmuni fanga, starfsmanna og fjölskyldna fanga í huga. Mikil áhersla verður lögð á bætt öryggi, ekki síst fanga og starfsfólks fangelsa en jafnframt á bættan aðbúnað heimsóknargesta, þar sem gætt verður sérstaklega að þörfum barna.

Eru þetta mestu umbætur í fangelsismálum frá því Hólmsheiði var byggð og með nýju fangelsi munum við færa alla aðstöðu í nútímalegt horf þar sem áhersla verður á að tryggja öryggi fanga og alls starfsfólks sem starfar á Litla Hrauni. Tryggt verður að nauðsynlegar endurbætur verði gerðar á Litla Hrauni á byggingartíma nýs fangelsis enda er stefnt að því að full starfsemi verði í fangelsinu á meðan á byggingartíma stendur.

Eins og staðan er í dag er ekki mögulegt að skipta fangahópum á Litla Hrauni upp með fullnægjandi hætti og getur það og hefur skapað mikla hættu auk þess sem ómögulegt er að hindra streymi fíkniefna og annarra ólögmætra muna inn í fangelsið. Einnig er vinnuumhverfi allra starfsmanna óviðunandi og mikilvægt að bæta það. Þá þarf fangelsisumhverfi að vera þannig að uppbyggilegt endurhæfingarstarf í samræmi við betrunarsjónarmið sé mögulegt. Því miður er það ekki raunin á Litla Hrauni.

Saga betrunar á Litla Hrauni fer að nálgast hundrað ár. Sú starfsemi sem hefur farið fram á Litla Hrauni hefur gengið afskaplega vel og verið í mikilli sátt nærsamfélags fangelsisins. Brýnt er að fara í uppbyggingu á nýju húsnæði þannig að fangelsið standi undir nafni sem nútímalegt fangelsi þar sem öryggi allra er tryggt.

Af sama tilefni tilkynnti ég um stækkun á Sogni en þar munum við fjölga plássum um 14 á næstu mánuðum. Með þessu erum við meðal annars að bregðast við ábendingum frá umboðsmanni Alþingis. Í nýlegri skýrslu kom fram að staða kvenna í íslenskum fangelsum væri lakari en staða karla. Með breytingum á Sogni er verið að bæta stöðu kvenna í fangelsum og auka möguleika þeirra á að afplána í viðeigandi aðstæðum og með sambærilega möguleika til vistunar og karlar.

Samhliða umbótum á innviðum fangelsiskerfisins verður farið í endurskoðun fullnustulaga með áherslu á betrun og nútímalega nálgun. Þá er umrædd endurskoðun tímabær í ljósi reynslu síðustu ára og aðfinnslna eftirlitsstofnana þingsins og alþjóðlegra eftirlitsstofnana.

Þetta eru stórtíðindi fyrir íslenskt samfélag. Markmið okkar er að byggja upp fangelsi og fullnustukerfi sem sæmir nútímaþjóðfélagi, með bætt öryggi og aðstöðu til betrunar að leiðarljósi.

Nýjar fréttir