13.4 C
Selfoss

Öflugt vetrarstarf Félags eldri borgara á Selfossi að hefjast

Vinsælast

Þegar líður að seinni hluta septembermánaðar  kemst hreyfing á öflugar nefndir, stjórnir og námskeiðshaldara sem hefja undirbúning að öflugu vetrarstafi FebSel. Það er stór hópur öflugara einstaklinga sem kemur að vetrarstarfinu ár hvert og verður þeim seint full þökkuð sú vinna.

Kynningarfundur vetrastarfsins verður fimmtudaginn 21. september og hefst hann á léttum kaffiveitingum kl. 14.45 í boði stjórnarinnar. Þegar allir hafa notið  veitinganna hefjast kynningar á starfi vetrarins eins og það liggur fyrir. Og af mörgu er að taka að venju.

Myndlist, leiklist, sönglist, tálga, spila, lesa öndvegisbókmenntir, bæði nýjar og fornar.

Leikhúsferðir, gönguferðir, bæði lengri og skemmri. Hreyfifimi af öllum gerðum og styrkleikum og jóga til slökunar. Boccia, snóker og pútt.

Unnið með liti, leir, pappír, postulín. Unnin handavinna af öllum stærðum og gerðum. Hitta fólk, drekka kaffi, njóta samskipta, efla færni og njóta.

Skráningarlistar munu liggja frammi í Grænumörkinni eða tilkynnt um annað skráningarform.

Öflug opin hús verða á fimmtudögum og munum við þar vera með fræðandi fyrirlestra, skemmtileg innslög, söng og alls kyns uppákomur.  Kvenfélagið mun sjá um veitingarnar í vetur eins og þær gerðu sl. vetur og slógu þær í gegn.

Árshátið FebSel verður 9. nóvember í Hótel Selfoss, með öflugri skemmtidagskrá og léttum snúningum.

Aðventuhátið verður 7. desember með hátíðlegum söng og nærveru og ljúfum veitingum.

Við vekjum athygli á því að þetta öfluga starf sem við erum með í félagsmiðstöð okkar í Grænumörkinni og víðar er fyrir alla eldri borgara í Árborg.

Skrifstofa félagsins er opin á fimmtudögum frá 13.00 – 14.30 og er á efri hæðinni í Grænumörk. Heimasíðan er í endurnýjunarferli en allar upplýsingar koma fram á fésbókarsíðu okkar.

Það er öflugt starf framundan og allir velkomnir. Ef einhver hefur áhuga á að brydda upp á nýjum námskeiðum eða með hugmyndir af einhverju skemmtilegu þá endilega hafa samband við stjórnina.

Við hvetjum alla eldri borgara að skrá sig í Félag eldri borgara á Selfossi í gegnum netfangið febsel@febsel.is eða koma við á skrifstofu félagsins á opnunartíma.

Takið þátt í öflugu starfi eldri borgar á Selfossi og njótið ykkar í öflugum félagsskap!

Kveðja

Magnús J. Magnússon,
formaður Félags eldri borgara á Selfossi

Nýjar fréttir