Nk. sunnudag 13. ágúst kl.14 verður útiguðsþjónusta í Arnarbæli í Ölfusi.
Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna leiðir söng, organisti er Pétur Nói Stefánsson og sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar. Að guðsþjónustu lokinni verður býður Kotstrandarsókn og kirkjukórinn í kirkjukaffi.
Arnarbæli er við ósa Ölfusár, athugið breyttan Suðurlandsveg milli Hveragerðis og Selfoss.
Kirkju er fyrst getið í Arnarbæli um 1200 og síðasta kirkja þar var ofan tekin 1909 þegar Arnarbælis- og Reykjasóknir voru sameinaðar og ný kirkja byggð á Kotströnd. Arnarbæli var prestssetur til 1942.
Ef veðrið bregst verður guðsþjónustan í Kotstrandarkirkju.