12.8 C
Selfoss

Guðrún Hafsteinsdóttir er nýr dómsmálaráðherra

Vinsælast

Hvergerðingurinn Guðrún Hafsteinsdóttir tók síðasta mánudag við embætti dómsmálaráðherra. Guðrún tók við lyklavöldum í dómsmálaráðuneytinu af Jóni Gunnarssyni sem gegnt hefur embættinu síðustu 18 mánuði.

Guðrún er fædd á Selfossi 9. febrúar 1970. Hún lauk BA-próf í mannfræði HÍ 2008 og diplóma í hagnýtri jafnréttisfræði HÍ 2011. Guðrún starfaði um árabil hjá fjölskyldufyrirtækinu Kjörís í Hveragerði. Hún hefur gegnt fjölda trúnaðar- og stjórnarstarfa í fyrirtækjum og félögum og var um árabil atkvæðamikil innan Samtaka atvinnulífsins, hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna og Landssamtökum lífeyrissjóða.

Guðrún hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem fyrsti þingmaður Suðurlands frá kosningum árið 2021 og tók við embætti dómsmálaráðherra þann 19. júní 2023.

Jón Gunnarsson og Guðrún Hafsteinsdóttir við lyklaafhendinguna. Ljósmynd: Stjórnarráðið.

Nýjar fréttir