Fimm keppendur frá Judodeild Selfoss kepptu á Vormóti JSÍ Seniora. Um 29 keppendur frá 6 félögum tóku þátt í mótinu. Keppendur frá Selfossi fengu eitt silfur og 2 brons.
„Þetta var spennandi mót og þar sérstaklega í -66kg og -81kg.
Í -81 vorum við með 3 fulltrúa. Breki, Stymir og Jakub. Breki og Jakub mættust í fyrstu glímu og hafði Breki betur eftir erfiða glímu. Breki tapar svo naumlega í gullskori gegn Gísla Egilsyni í undanúrslitum og fær þar með brons. Í -66 vorum við með Fannar sem hafði unnið U21 seinustu helgi og vann hann tvær og tapaði tveim og nælir sér í brons á hans fyrsta ári í Seniora flokki þar sem hann er einugis 15 ára,“ segir Egill Blöndal, þjálfari hópsins.
Sigurður Fannar Hjaltason +100kg 2.sæti
Fannar Júlíusson -66kg 3.sæti
Breki Bernharðsson -81kg 3.sæti
Jakub Tomczyk -81kg 5.sæti
Styrmir Hjaltason -81kg 7.sæti