Lið FSu í Gettu betur hafði betur í undanúrslitum gegn Verkmenntaskóla Austurlands í beinni útsendingu á RÚV í kvöld 31-26. Ásrún Aldís Hreinsdóttir, Elín Karlsdóttir og Heimir Árni Erlendsson skipa liðið en við fengum að kynnast liðinu í skemmtilegu viðtali eftir sigur þeirra á MH um miðjan janúar.
FSu mætir Menntaskólanum í Reykjavík í úrslitaviðureign Gettu betur í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ næsta föstudagskvöld.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2023/03/IMG_BA507A18BF48-1.jpeg?resize=696%2C395&ssl=1)