Kardóbær er yndislegur bær á Suðurlandi, fullur af skrítnum húsum og skemmtilegum dýrum og litríkum íbúum. Þekktur er bærinn fyrir friðsæld og veðurfar sem ekki fyrirfinnst annarsstaðar á Íslandi. Þrennt er það þó sem að ógnar friðsældinni í Kardóbæ, þrír kostulegir ræningjar, ógurlega ljónið þeirra sem elskar mjólkursúkkulaði og hin ráðríka og skapstygga en jafnframt hin fallega og góða Soffía frænka.
Ræningjarnir þrír
Ræningjarnir kostulegu Kjasper, Bresper og Sjónatan sem yfirgefnir af móður sinni urðu frægir af endemum er þeir fengu sína korter af frægð í goðsagnakennda raunveruleikasjónvarpsþættinum „Allt í skrúfunni“.
Fyrir þá sem ekki vita, að þá fær sá flest stig í þeim þætti sem getur nítt sem mest skóinn af nágrannanum, logið uppá hann sakir og boðið uppá sem flest tonn og rúmmetra af bjór og pizzum, sérstaklega stuttu fyrir lýðræðislegar kosningar. Fyrir það eru gefin auka stig. Fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar fengu ræningjarnir 12+ stig, fullt hús stiga. Og félagar þeirra í kjölfarið hreinan meirihluta í bæjarstjórn Kardóbæjar.
Ræningjarnir þrír eru ýmsum „hæfileikum“ gæddir. Sá elsti, Kjasper, er þeim hæfileikum gæddur að vita ekki skilgreininguna á fermeter, sá í miðjunni Bresper veit ekki muninn á réttu og röngu og sá yngsti Sjónatan, veit ekki neitt. Ræningjarnir þrír eru ekki miklar mannvitsbrekkur svona miðað við…fólk.
Ljónið
Ljónið, krúttið, Ljónsi beib. Ljónsi beib eyðir mestum tíma sínum upp í rúmi jórtrandi mjólkursúkkulaði. Hann er krútt, Mjaw! Þegar ljónið geiflar sig og grettir, teygir loppurnar fram eftir góðan lúr og prumpar, hleypur dáleg dýrð af hræddum dýrum undir hans mjöðm. Þannig hefur það verið undanfarin tuttugu og fimm ár í Kardóbæ. Prump og fart og flest dýr hlaupa undir hans bagga. Hárlausan bagga sem hefur stækkað og þyngst í áranna rás.
Soffía frænka
Soffía bæjarstýra í Kardóbæ á fullt í fangi með að stýra bænum með ræningjana og ljónið innanbæjar. Ræningjarnir og ljónið eru alltaf að biðja um meiri þrif og meiri mat.
Soffía, glaðlynda framfarasinnaðaætta og eftirlætisdúlla samfélagsins í Kardóbæ, skilur ekkert hvernig í heitapotta er snúið með Ræningjana þrjá og ljónið innanborðs. Hún áttar sig ekki á því í dag að ræningjarnir og ljónið ætla sér að éta hana. Hún fattar það ekki.
Það er komið að íbúum Kardóbæjar sem fylgjast meðvirknislega með þróuninni að láta hana vita að ræningjarnir og ljónið séu ekki góður félagsskapur og ætla sér að éta hana. Hún Soffía, sem við elskum öll og dáum ætti að drífa sig yfir í hitt liðið hið snarasta. Það lið spilar sóknarbolta, er framsækið og mun slá í gegn.
Við stöndum öll með þér Soffía!
Dissum, dei!
Tómas Ellert Tómasson,
byggingarverkfræðingur og oddviti Miðflokksins í Svf. Árborg