Selfyssingurinn Bergrós Björnsdóttir og CrossFit-goðsögnin Annie Mist Þórisdóttir sigruðu örugglega í öllum keppnisgreinunum í parakeppni Reykjavíkurleikanna í CrossFit sem sýndir voru í beinni útsendingu á RÚV þann 28. janúar síðastliðinn.
Bergrós, sem er aðeins 15 ára gömul fékk þann heiður að keppa við hlið einnar stærstu Crossfit stjörnu heims. Annie Mist er tvöfaldur heimsmeistari í CrossFit og var það frábært tækifæri og mikil reynsla fyrir Bergrós að keppa með Annie sér við hlið.
Bergrós keppti í unglingaflokki á sínum fyrstu heimsleikum árið 2022 og stefnir ótrauð á að komast aftur í ár.
Hægt er að horfa á upptöku af Reykjavíkurleikunum sem þær stöllur rúlluðu upp hér!
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2023/02/Unknown.jpeg?resize=696%2C928&ssl=1)