Sunnlenska hljómsveitin Moskvít gaf út nýtt lag á dögunum. Hafa þeir verið iðnir við kolann í lagasmíðum en þeir frumfuttu lagið Perfect little wonder á Kótelettunni síðasta sumar. Moskvít eru að sögn með fullt í gangi, hafa boðið nýja hljómsveitarmeðlimi velkomna og segjast spenntir fyrir undirbúningi útgáfu næsta lags sem mun birtast á streymisveitum þann 17. febrúar nk.
„Við vorum að gefa út fyrsta lagið okkar á þessu brakandi ferska ári, en ekki það seinasta. Það heitir Superior Design, sem mun einnig verða nafn næstu plötu. Lagið er taktfast en þó eins og úr öðrum heimi, þar sem gítarinn bergmálar eins og úr annari vídd, hvort sem hann er plokkaður eða látinn væla eins og seiðandi sírena. Texti lagsins vísar í hvernig mannkynið, dýr af æðri hönnun, hefur mátt til að skapa eða tortíma, en stjórnast þó bara af einföldum tilfinningum og hugmyndafræði. Við teygjum okkur inn í hyldýpi alheimsins og reynum að krækja klónum í eitthvað sem gefur okkur tilgang, en vitum ekki hvort hann er að finna þarna úti eða einhvers staðar inn á við,“ sögðu strákarnir í samtali við Dagskrána.