Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir er sunnlenski matgæðingurinn að þessu sinni.
Hér færi ég ykkur eftirlætisrétt fjölskyldunnar sem bregst aldrei.
Kjúklingalæri í doritos raspi með kartöflubátum, rófum og ostasósu.
- 1 bakki úrbeinuð kjúklingalæri
- 2 pokar svartur dorritos
- 2 egg
- hveiti
- 500 g kartöflur
- 1 meðalstór rófa
- 1 bakki beikon
- sítróna
- smjör
- salt og pipar
Sósa:
- ½ L rjómi
- ½ piparostur
- ½ villisveppaostur
- dass af fljótandi kjúklingakrafti
Hellið rjómanum í pott og hitið upp að suðu.
Rífið ½ piparost og ½ villisveppaost útí og látið malla á miðlungs hita þar til osturinn hefur bráðnað.
Slettið dass af fljótandi kjúklingakrafti útí sósuna og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Skerið kartöflurnar í báta og rófuna í bita og steikið á miðlungs hita á pönnu í u.þ.b 20 mín eða þar til þær eru vel brúnaðar að utan.
Færið kartöflu og rófu blönduna í eldfast mót og sullið einni ausu af sósunni yfir.
Leggið beikon sneiðar á bökunarpappír og eldið í ofni við 230°C í u.þ.b 10 mínútur á undir og yfir hita eða þar til það er miðlungs stökkt.
Skerið beikonið í bita og stráið yfir kartöflurnar. Skellið kartöflu og rófu blöndunni inn í ofn og bakið í 30-40 mínútur við 200°C á undir og yfir hita.
Skerið kjúklingalærin í tvennt.
Setjið hveiti í skál. Pískið egg í skál og myljið dorritos niður svo það verði eins og fínn raspur (best að mylja það í pokanum) og hellið í skál. Veltið kjúklingnum fyrst uppúr hveiti, næst er hann baðaður í egginu og síðast velt uppúr dorritos.
Setjið vel af smjöri á pönnu og brúnið kjúklinginn að utan í u.þ.b 1-2 mínútur á hvorri hlið. Bætið við smjöri eftir þörfum.
Færið kjúklinginn í eldfast mót og setjið nokkrar smjörklípur hér og þar. Bakið í ofni þar til hann er fulleldaður eða í u.þ.b 15-20 mínútur.
Berið kjúklinginn fram með fersku salati, kartöflubátum og rófum og ostasósunni. Kreistið sítrónusafa yfir kjúklinginn eftir smekk.
Mig langar til að skora á matgæðinginn hana systur mína, Rögnu Valdísi Sigurjónsdóttur að koma með einhverja snilld úr sínu eldhúsi í næstu viku.