Kvenfélgið Eining Holtum heldur Aðventuhátíð að Laugalandi sunnudaginn 27. nóvember kl 13-16.
Tombólan vinsæla – engin núll. Söluborð með ýmsan varning til sölu, tónlistarflutningur, dansatriði, bókaskiptimarkaður o.fl. Jólasveinar koma í heimsókn og kveikt verður á jólatré. Heitt kakó og vöfflur verða seldar og rennur allur ágóði í Barnasjóð Einingar.
Kvenfélagskonur vonast til að sjá sem flesta og njóta fyrsta sunnudags í aðventu saman.