Þriðjudaginn 1. nóvember nk. kl 17:00 verður alzheimer kaffi í húsnæði Vinaminnis, Vallholti 19 á Selfossi. Alzheimer kaffi er fyrir fólk með Alzheimer og aðra heilabilunarsjúkdóma og aðstandendur þeirra. Í kaffinu verður fræðsla frá Alzheimer samtökunum, tónlistaratriði, kaffi og spjall. Kaffigjald er 500 kr.
Hlökkum til að sjá sem flesta og eiga notalega stund saman.
Fréttatilkynning frá alzheimersamtökunum.