3.9 C
Selfoss

Kiwanisklúbburinn Ölver gefur skólanum pannavöll

Vinsælast

Kiwanismenn í Þorlákshöfn hafa í gegnum árin stutt vel við starf grunnskólans. Í vor höfðu þeir samband við skólastjórnendur með gjöf til skólans í huga. Til tals kom að bæta við aðstöðu á skólalóðinni með því að setja upp annan pannavöll. Einn völlur hefur verið við skólann í nokkur ár og er vinsæll meðal nemenda. Leikurinn var fyrst kynntur á unglingalandsmóti sem var hér í Þorlákshöfn árið 2018. Tveir leikmenn eru á vellinum í einu og hafa að markmiði að skora boltanum í lítið mark á vellinu. Nýr leikmaður kemur inn á völlinn þegar annar aðilinn hefur skorað mark. Völlurinn var settur upp í sumar og hefur verið mikið nýttur í góða verðrinu að undanförnu.

Í lok september fór formleg afhending vallarins fram þar sem Ólína skólstjóri og nokkrir nemendur á yngsta stigi tóku við vellinum frá Gústaf Ingva Tryggvasyni formanni Kiwanisklúbbsins Ölvers.

Nýjar fréttir