Til að varðveita Guðbjargargarð í Múlakoti í Fljótshlíð og vinna að endurbótum á húsakosti þar efnir Vinafélag gamla bæjarins í Múlakoti til Ljósakvölds í Guðbjargargarði klukkan 19.30 laugardaginn 3. september.
Ljósakvöldið dregur nafn sitt af því að í Kaupmannahöfn 1928 til 1929 kynntist Ólafur Túbals listmálari í Múlakoti skrautljósum í Tívolí og trjágörðum. Við heimkomu setti hann þau upp í garði móður sinnar Guðbjargar Þorleifsdóttur.
Auk ljósanna í trjánum minnast margir sem sóttu Múklakot heim lysthússins í garðinum. Nú er unnið að endursmíði hússins og styður vinafélagið við það framtak. Ljósakvöldið er meðal fjáröflunarleiða til þess.
Björn Bjarnason, formaður vinafélagsins, býður gesti velkomna. Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur á Breiðabólstað, flytur ávarp. Þórður Helgason, fyrrv. dósent, flytur ljóð. Grétar Geirsson leikur á harmonikku.