Dagana 23. og 24. apríl fór fram Norðurlandameistamótið í Judo í íþróttahúsinu Digranesi Kópavogi. Mótið er fjölmennasta judomót sem haldið hefur verið á Íslandi og voru rúmlega þrjúhundruð keppendur frá 7 löndum. Mótið var haldið síðast á Íslandi árið 2015, en fella hefur þurft niður tvö síðustu Norðurlandamót vegna Covid.
Í flokki fullorðina unnu Íslendingar til sex verðlauna. Karl Stefánsson sigraði +100kg flokkinn með yfirburðum, en Karl sigraði alla þrjá andstæðinga á ippon. Zaza Simonishvili sigraði -73kg flokkinn örugglega en hann vann allar þrjár viðureignir sínar á ippon.
Egill Blöndal og Breki Bernharðsson unnu báðir til bronsverðlauna í -90kg flokki. Egill tapaði naumlega sinni fyrstu viðureign en sigraði svo næstu tvær og tryggði sér þar með bronsverðlaun.
Breki sigrað fyrstu tvær viðureignir sínar en laut svo í lægra haldi gegn David Ivanian í undan úrslitum. Ivanian sigraði flokkinn seinna um daginn en Breki glímdi gegn Skarphéðni Hjaltasyni um bronsið og sigraði Breki þá viðureign.
Einnig kepptu Böðvar Arnarsson og Jakub Tomaczyk í -81kg flokki fullorðinna og flokki undir 21 árs. Báðir verða 18 ára á þessu ári og því yngstu keppendur í báðum flokkum.
Böðvar vann eina viðureign í fullorðins flokki og lenti í 7. Sæti af 18 þátttakendum.
Jakub vann eina glímu í U21 og náði 5. Sæti af 13 þátttakendum.
Egill og Breki kepptu einnig í íslensku sveitinni í sveitakeppni Norðurlandamótsins, og vann íslenska sveitin með nokkrum yfirburðum til gullverðlauna.