-4.1 C
Selfoss

Fimm Selfyssingra með landsliðinu

Vinsælast

Fimm Selfyssingar eru í tuttugu manna leikmannahópi íslenska landsliðsins í handbolta sem tekur þá á EM í Ungverjalandi í janúar.

Þetta eru þeir Bjarki Már Elísson, Elvar Örn Jónsson, Janus Daði Smárason, Teitur Örn Einarsson og Ómar Ingi Magnússon, en þeir leika allir í þýsku úrvalsdeildinni. Haukur Þrastarson var ekki valinn í 20 manna hóp að þessu sinni, en Haukur hefur verið að glíma við meiðsli að undanförnu.

Landsliðið kemur saman til æfinga þann 2. janúar og  spilar tvo vináttulandsleiki við Litháen á Ásvöllum í Hafnarfirði þann 7. og 9. janúar. Strákarnir halda síðan út til Búdapest þann 11. janúar þar sem liðið leikur í B-riðli ásamt Portúgal, Hollandi og Ungverjalandi. Tvö efstu liðin komast áfram í milliriðil en hann fer einnig fram í Búdapest.

Leikir Íslands í riðlakeppni EM 2022 eru eftirfarandi:

14. jan. kl. 19:30 Portúgal – Ísland
16. jan. kl. 19:30 Ísland – Holland
18. jan. kl. 17:00 Ísland – Ungverjaland

Allir leikir Íslands verða í beinni útsendingu á RÚV.   – Umf. Selfoss / ESÓ

Nýjar fréttir