9.5 C
Selfoss

Umhverfisverðlaun Árborgar 2021

Vinsælast

Á degi íslenskrar náttúru, fimmtudaginn 16. september, voru afhentar viðurkenningar umhverfisnefndar til þeirra sem hafa með gróðurhirðu og snyrtimennsku verið til fyrirmyndar í Sveitarfélaginu Árborg.

Hjónin Sigríður Tómasdóttir og Guðmundur Halldórsson, Sunnuvegi 16.

Veitt voru verðlaun fyrir fallegasta garðinn í Árborg og komu þau í hlut hjónanna Sigríðar Tómasdóttur og Guðmundar Halldórsson að Sunnuvegi 16 á Selfossi. Þau hjónin hlutu einnig sambærilega viðurkenningu árið 1980 og hafa sannarlega ræktað vel sinn garð frá þeim tíma. Garðurinn er einstaklega fallegur og þar má finna fjölær skrautblóm, trjátegundir og matjurtir. Grasflatirnar eru snyrtilegar og rammaðar inn af fallegum fjörusteinum.

Eggert Valur Guðmundsson og Hanne Smidesang.

Snyrtilegasta fyrirtækið að mati umhverfisnefndar var Hrafntinna Villa, sem er fallegur gististaður í Byggðarhorni sunnan Votmúlavegar. Hanne Smidesang tók á móti verðlaununum fyrr hönd fyrirtækisins sem hún veitir forstöðu.

Loks var veitt viðurkenning til fallegustu götunnar í Árborg. Það var Grenigrund á Selfossi sem að þessu sinni þótti fallegasta gatan og það voru að venju yngsti og elsti íbúinn við götuna sem tóku við verðlaununum fyrir hönd íbúanna. Þessa má til gamans geta að Grenigrund var einnig valin fallegasta gatan árið 2004 og er augljóst að mikil samstaða er meðal íbúa við götuna um að halda umhverfinu snyrtilegu.

 

Nýjar fréttir