Þann 27. apríl sl. var lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fyrir grunnskóla í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu og Vestmannaeyjum haldin í Hvolsskóla á Hvolsvelli. Viðburðurinn var lágstemmdur vegna kórónuveirufaraldurs en hátíðlegur engu að síður.
Keppendur voru 11 og allir stóðu sig með mikilli prýði. Dómurum var vandi á höndum að gera upp á milli allra þessara góðu lesara. Á endanum stóðu eftir sem sigurvegarar eftirtaldir nemendur:
- sæti Þórður Kalman Friðriksson Hvolsskóla
- sæti Heiðmar Þór Magnússon Grunnskóla Vestmannaeyja
- sæti Hulda Guðbjörg Hannesdóttir Laugalandsskóla