3.4 C
Selfoss

Sveitarstjóri Rangárþings eystra vann dag með vinnuskólanum

Vinsælast

Lilja Einarsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra, vann heldur öðruvísi vinnudag fyrir skömmu en hún er vön. Lilja fékk að vinna einn dag í vinnuskólanum með þeim góða hóp af ungmennum sem þar starfa. Lilja og vinnuskólakrakkarnir héldu í Landeyjafjöru þar sem þau unnu við hreinsun í blíðskaparveðri og að sjálfsögðu voru grillaðar pylsur í hádegisverð til að halda uppi orkunni. Byrjað var að vinna við hreinsun í Landeyjafjöru á síðasta ári en þá voru um 2,6 tonn hreinsuð úr fjörunni og nú er haldið áfram með það verkefni og 1,8 tonn hreinsað í burtu.

 

Nýjar fréttir