Sem kunnugt er stóð til að halda héraðsþing HSK á Hvolsvelli næsta fimmtudag.
Stjórn HSK hefur ákveðið að fresta héraðsþinginu vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru í þjóðfélaginu vegna Covid veirunnar. Þinginu er frestað tímabundið, en ný dagsetning hefur ekki verið ákveðin.