-6.1 C
Selfoss

Selfossveitur biðja íbúa um að spara heita vatnið

Vinsælast

Vegna mikillar kuldatíðar næstu daga hvetjum við íbúa til að fara sparlega með heita vatnið. Fólk getur sparað heitt vatn og þar með kyndikostnað sinn með því að gæta að því að gluggar séu ekki opnir og útidyr ekki látnar standa opnar lengur en þörf er á. Þá skipta einnig máli stillingar ofna – að óþarflega heitt vatn renni ekki frá þeim – og að ofnarnir séu ekki byrgðir, til dæmis með síðum gluggatjöldum eða húsgögnum. Þá eru heitir pottar við heimili talsvert þurftafrekir á vatnið og gott að hafa í huga að fara sparlega með neysluvatn eins og við uppvask og böð (sturtur, baðkör).

 

Nýjar fréttir