70 ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni viku. Hraðast ók íslenskur karlmaður fæddur 1975 en bifreið hans mældist á 157 km/klst hraða á Suðurlandsvegi til móts við Oddgeirshóla. Listi yfir ríkisfang þeirra sem óku of hratt telur 20 þjóðríki skv. lögreglunni á Suðurlandi.