-4.8 C
Selfoss

Útivistardagur í Hallskoti

Vinsælast

Á degi íslenskrar náttúru, þann 16. september síðastliðinn, héldu nemendur og starfsmenn Barnaskólans upp á daginn með því að vinna í alskyns verkefnum í Hallskoti sem er í eigu Skógræktarfélags Eyrarbakka. Þar voru tíu stöðvar skipulagðar með útikennslu í huga, tálgun, mælingar á vextri gróðurs, gróðursetning, bakstur yfir eldi, fuglaskoðun, leikir, myndlist og sögugerð vor meðal þess sem nemendur unnu í. Nemendum var skipt upp í aldursblandaða hópa þar sem elstu nemendurnir voru með leiðtogahlutverk. Dagurinn lukkaðist afskaplega vel og lauk dagskránni með grillveislu sem góður rómur var gerður að.

 

Nýjar fréttir