![Allt á öðrum endanum í Bókasafni Árborgar Allt á öðrum endanum í Bókasafni Árborgar](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/08/Bókasafn.jpg?fit=720%2C960&ssl=1)
Miklar framkvæmdir eru um þessar mundir á Bókasafni Árborgar en verið er að bæta og breyta aðstöðunni til hins betra. Til þess þurfti meðal annars að færa allt úr öðrum enda hússins yfir í hinn og má því segja að allt sé á öðrum endanum í bókasafninu um þessar mundir. Það eru vaskir starfsmenn bókasafnsins sem fluttu það sem flytja þurfti með annarri hendinni. Þá kemur fram í samtali við bókasafnið að búið sé að færa alla skiladaga fram til 19. September þannig að ekkert þarf að skila fyrr en safnið opnar að nýju í glæsilegri mynd.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/08/Bókasafn2.jpg?resize=960%2C720&ssl=1)