![Milan Kundera og Ísland í Hlöðunni að Kvoslæk Milan Kundera og Ísland í Hlöðunni að Kvoslæk](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/08/kvoslaekur.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/08/fridrik_rafnsson.jpg?resize=300%2C267&ssl=1)
Sunnudaginnn 18. ágúst nk. kl. 15.00 flytur Friðrik Rafnsson þýðandi erindi í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð. Friðrik ræðir þar almennt um skáldsögur tékknesk/franska rithöfundarins Milans Kundera (f. 1929) og viðtökur þeirra hérlendis.
Kundera og kona hans, Vera, hafa margoft komið til Íslands og hafa íslenskar bókmenntir haft áhrif á bækur hans. Kundera hefur búið í Frakklandi frá 1975 og eru flestar bækur hans skrifaðar á frönsku.
Kundera hefur skrifað á annan tug bóka og hefur Friðrik Rafnsson þýtt þær allar á íslensku og hefur kynnst honum persónulega. Metsölubók Kundera Óbærilegur léttleiki tilverunnar, 1984, kom út á íslensku 1986 og varð einnig metsölubók hér á landi.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og að honum loknum verður boðið upp á kaffi.