Miðvikudagskvöldið 24. júlí sl. voru nýjar húseiningar við Leikskólann Álfheima á Selfossi, sem smíðaðar voru á Stokkseyri, fluttar upp á Selfoss á vörubílum. Ferðin gekk ljómandi vel að sögn bílstjóranna tveggja sem þræddu þröngar göturnar á Selfossi með húsin á vögnunum án nokkurra vandamála.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/07/Álfheimar1.jpg?resize=696%2C321&ssl=1)