![Nafn mannsins sem lést í flugslysi á Rangárvöllum Nafn mannsins sem lést í flugslysi á Rangárvöllum](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/07/sigurvin_bjarnason2.jpg?fit=768%2C545&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/07/sigurvin_bjarnason.jpg?resize=168%2C300&ssl=1)
Íslensku karlmaður, Sigurvin Bjarnason, lést í flugslysi á laugardaginn var á Haukadalsflugvelli á Rangárvöllum. Sigurvin, sem var 64 ára, lætur eftir sig eiginkonu, þrjú uppkomin börn og fimm barnabörn.
Tilkynning barst lögreglu klukkan 14:23 á laugardag um að flugvél hefði hlekkst á í flugtaki á Haukadalsflugvelli á Rangárvöllum. Viðbagðsaðilar komur á staðinn og var flugmaðurinn einn í flugvélinni. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Unnið er að rannsókn á tildrögum slyssins.