![Lokun vegar að Sauðleysuvatni Lokun vegar að Sauðleysuvatni](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/07/Screenshot-2019-07-16-at-08.50.38.png?fit=739%2C476&ssl=1)
Umhverfisstofnun ákvað þann 28. júní sl. að loka aðkomu að Sauðleysuvatni, innan Friðlands að Fjallabaki, á grundvelli náttúruverndarlaga vegna slæms ástands hans. Vegurinn sem um ræðir hefur grafist niður í leysingum en ekið hefur verið utan hans með tilheyrandi raski. Í framhaldi af þeirri lokun hefur Umhverfisstofnun ákveðið á grundvelli vegalaga að banna umferð vélknúinna ökutækja um veginn um óákveðinn tíma þar til hægt verður að koma í veg fyrir frekari skemmdir. Stofnunin mun endurmeta ráðstafanir á svæðinu eigi síðar en 1. október.