Afþreying og gisting
Í Friðlandinu er möguleiki á að stunda fjölbreytta afþreyingu . Hægt er að velja um margar fjölbreyttar gönguleiðir og hjólaleiðir og einnig liggja vinsælar reiðleiðir um friðlandið. Einnig er veiði í flestum vötnum á svæðinu og hægt að kaupa veiðileyfi í Landmannahelli og Landmannalaugum. Þrjú tjaldsvæði eru í friðlandinu þar sem einnig er boðið upp á skálagistingu. Nánari upplýsingar og bækling um friðlandið má nálgast hér
Afmælisdagskrá
Í friðlandinu starfa landverðir yfir sumartímann og eru þeir með fasta viðveru í Landmannalaugum frá kl. 10:00 – 13:00 þar sem þeir veita upplýsingar og fræðslu um svæðið. Í tilefni af því að friðland að Fjallabaki verður 40 ára í ár ætla landverðir að bjóða upp á fræðslugöngur úr Landmannalaugum laugardagana 6, 13 og 27. júlí. Lagt verður af stað frá upplýsingabás í Landmannalaugum kl. 14:00. Gengið verður um Laugahraun að Brennisteinsöldu og til baka um Grænagil. Gangan tekur um 2,5 klst. og er gestum að kostnaðarlausu. Þetta er miðlungs létt ganga þar sem landverðir segir frá náttúru og sögu friðlandsins. Á afmælisdaginn sjálfan sem er 13. ágúst verður boðið upp á afmælisgöngu sem verður nánar auglýst síðar.
Nánari upplýsingar hjá landvörðum í síma 822 4083