Selfyssingurinn Alexandra Björg Ægisdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Hreyfiviku UMFÍ. Hún æfði fimleika í æsku og keppti í hestaíþróttum. Alexandra hvetur Sunnlendinga til að standa fyrir viðburðum og hreyfa við öðrum í Hreyfivikunni.
„Það er mjög áhugavert að taka þátt í verkefni sem stuðlar að heilbrigðum lífsstíl og því að fá fleiri til að hreyfa sig. Sjálf stunda ég íþróttir 4–5 sinnum í viku, um klukkutíma í hvert sinn,“ segir Alexandra Björg Ægisdóttir nýr verkefnastjóri Hreyfiviku UMFÍ. Hún tekur við verkefninu af Sabínu Steinunni Halldórsdóttur, sem er í fæðingarorlofi.
Alexandra er 21 árs og að útskrifast úr viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á markaðsfræði, alþjóðaviðskipti og stjórnun.
Alexandra er Selfyssingur í húð og hár og býr þar. Hún er dóttir Bryndísar Guðmundsdóttur og barnabarn Guðmundar Steindórssonar, fyrrverandi aðstoðarvarðstjóra lögreglunnar á Selfossi sem lést fyrir tveimur árum en margir kannast við.
Alexandra hefur frá barnæsku æft íþróttir. „Ég byrjaði fjögurra ára í fimleikum hjá Ungmennafélagi Selfoss en hætti um fimmtán ára. Ég lagði íþróttir á hilluna þegar ég byrjaði í framhaldsskóla en hóf að æfa crossfit fyrir ári og geri það 4–5 sinnum í viku, klukkutíma í senn,“ segir hún.
Alexandra er jafnframt mikil hestakona eins og hún á kyn til. „Fjölskylda mín hefur alltaf átt hesta og við eigum þá þónokkra. Þegar ég var yngri tók ég þátt í mörgum mótum á vegum Hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi og Ljúfs í Hveragerði. Ég hef ekki farið nógu mikið á hestbak eftir að ég byrjaði í háskólanum en ætla að gera það strax eftir útskrift,“ segir hún.
Hreyfivika UMFÍ er dagana 27. maí til 2. júní. Markmið Hreyfivikunnar er það sama og í upphafi, þ.e. að fjölga þeim sem hreyfa sig reglulega og kynna fyrir fólki kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum. UMFÍ hvetur fólk til að finna sína uppáhalds hreyfingu og stunda hana reglulega eða í að minnsta kosti í 30 mínútur á hverjum degi.
„Það er mjög einfalt að taka þátt í Hreyfivikunni. Fjöldi boðbera hreyfingar er út um allt land að skipuleggja viðburði sem verða bæði í aðdragana Hreyfivikunnar og á meðan henni stendur. Boðberarnir eru sjálfboðaliðar, frábært fólk sem hreyfir við öðrum og gerir fleira fólki tækifæri til að sjá hvaða hreyfing er í boði. Þeir virkja fólkið í kringum sig og vekja athygli á hreyfingu sem fólk getur stundað,“ segir Alexandra.
Viðburðir í Hreyfiviku UMFÍ geta verið alls konar. Þeir geta verið opin æfing á fyrir alla, göngutúrar, ókeypis í sund eða jógatímar.
„Það er lítið mál að taka þátt í Hreyfiviku UMFÍ,“ segir Alexandra.
Boðberar hreyfingar geta skráð þá viðburði sem þeir vilja standa fyrir á vefsíðunni www.hreyfivika.is og aðrir séð hvað er í boði um allt land í Hreyfiviku UMFÍ.