Matvælastofnun varar við Hill´s hundafóðri vegna of mikils D-vítamíns. Fyrirtækið Vistor hefur innkallað eina framleiðslulotu af blautfóðrinu af markaði í samráði við Matvælastofnun. Einungis hefur verið hægt að kaupa fóðrið á dýralæknastofum.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vöruheiti: Precription diet canine i/d 360
- Framleiðandi: Hills Pet Nutrition
- Þyngd: 360 g
- Best fyrir dagsetning: 09 2020
- Lotunúmer: 09 2020 /27
- Framleiðsluland: Bandaríkin
- Dreifing: Dýraspítalinn í Garðabæ, Dýralæknirinn í Mosfellsbæ, Dýralæknamiðstöðin í Grafarholti, Dýralæknastofa Dagfinns og Dýralæknastofa Reykjavíkur
Einkenni D-vítamíneitrunar geta verið minnkuð matarlyst og þyngdartap ásamt auknum þorsta, slefi og þvaglátum. D-vítamíneitrun getur í alvarlegum tilvikum leitt til nýrnabilunar.
Hundeigendur eru hvattir til að hafa samband við dýralækninn sinn ef hundur þeirra hefur neytt blautfóðurs frá Hill’s Pet Nutrition og sýnir einkenni D-vítamíneitrunar.