Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins sem haldinn var í liðinni viku var Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís Hveragerði, endurkjörin formaður með 95,9% greiddra atkvæða. Guðrún verður formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2020.
Alls gáfu sjö kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kosið um fjögur sæti. Ágúst Þór Pétursson, húsasmíðameistari, Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðuráli, Magnús Hilmar Helgason, Launafli í Fjarðabyggð og Sigurður R. Ragnarsson, ÍAV, setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára. Sigurður situr áfram í stjórn en nýir eru Ágúst Þór, Guðrún Halla og Magnús Hilmar. Fyrir í stjórn eru Árni Sigurjónsson, Marel, Birgir Örn Birgisson, Pizza-Pizza, Egill Jónsson, Össuri, María Bragadóttir, Alvogen Iceland og Valgerður Hrund Skúladóttir, Sensa.