Á dögunum var skrifað undir samning Bláskógabyggðar við HK verktaka ehf. um innanhússfrágang og lóðafrágang leikskólans Álfaborgar í Reykholti. HK verktakar áttu lægsta tilboð í útboði sem Verkís ehf. hélt utan um fyrir Bláskógabyggð.
Fyrri áfanga verksins lýkur á næstu vikum, en Ari Oddsson ehf. hefur annast þann þátt, þ.e. uppsteypu og utanhússfrágang.
Áætlað er að taka hina nýju leikskólabyggingu í notkun næsta haust, og verður leikskólinn Álfaborg þá kominn í varanlegt húsnæði. Arkitektastofan VA arkitektar annast hönnun hússins og Verkís sér um verkfræðihönnun.
Samningar um leikskólabyggingu í Reykholti undirritaðir
![leikskoli_reykholti](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/02/leikskoli_reykholti.jpg?resize=1000%2C514&ssl=1)