Vegna mikils kulda þarf að loka útisvæði Sundhallar Selfoss fimmtudag til sunnudags en innilaugunum verður haldið opnum þessa daga. Sundlaugin á Stokkseyri verður opin í dag, fimmtudag til kl. 18:30 en lokuð föstudag til sunnudags. Stefnt er á að opna báðar laugar að fullu nk. mánudag 4.febrúar samkvæmt opnunartíma. Verði aðstæður metnar betri af Selfossveitum munum við reyna að opna fyrr. Íbúar og gestir eru beðnir velvirðingar á þessum lokunum en þær tengjast miklum kulda í veðurfarinu undanfarna daga.
Sundlaugar Árborgar loka að hluta vegna mikils kulda næstu daga
![Sundhöllin Sundhöll Selfoss. Ljósmynd: ÖG.](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/03/Sundhöllin.jpg?resize=1068%2C712&ssl=1)