Hress ferðamaður sem heitir Faruk og er frá Ankara í Tyrklandi lét sér ekki muna um að tjalda í snjónum rétt neðan við Kerið í Grímsnesi ásamt unnustu sinni í kuldanum í gær.
Einn af lesendum dfs.is kom að honum kl.10:30 í gærmorgun þar sem hann var að fá sér morgunkaffi áður en þau færu að skoða Kerið. Þau eru að ferðast um Ísland á „puttanum“. Næsti áfangastaður þeirra er Geysir og síðan Gullfoss.
Aðspurður hvort ekki hafi verið kalt hjá þeim í tjaldinu í nótt , svaraði Faruk að bragði „Nei við erum mjög vel útbúin“.