![Kvöldmessa með Magnúsi Þór í Selfosskirkju Kvöldmessa með Magnúsi Þór í Selfosskirkju](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/01/Magnús-Þór-Sigmundsson.jpg?fit=768%2C1024&ssl=1)
Sunnudagskvöldið 27. janúar nk. kl. 20 verður kvöldmessa í Selfosskirkju þar sem fléttast saman falleg tónlist, ritningarorð og bæn. Magnús Þór Sigmundsson sér um tónlistina og sr. Ninna Sif Svavarsdóttir um guðsorðin. Þetta verður notaleg samvera í helgarlok. Allir eru hjartanlega velkomnir.