Verktakafyrirtækið Jáverk vinnur um þessar mundir að byggingu íbúða á Edenreit í Hveragerði. Um er að ræða samtals djötíu og sjö íbúðir, 55 til 95 fermetrar að stærð, í húsum á tveimur til þremur hæðum. Framkvæmdaaðili er Suðursvalir. Áætlaður byggingakostnaður er um tveir milljarðar.
Íbúðirnar eru áhugaverður kostur fyrir þá sem vilja minnka við sig og barnafólk sem vill komast í sveita- og gróðursæluna í Hveragerði.