![Gönguleiðir við Fjaðrárgljúfur opnaðar á morgun Gönguleiðir við Fjaðrárgljúfur opnaðar á morgun](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/01/fjadrargljufur3.jpg?fit=600%2C400&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2019/01/fjardargljufur1.jpg?resize=209%2C196&ssl=1)
Umhverfisstofnun mun frá og með morgundeginum, 23. janúar, opna gönguleiðir við náttúruverndarsvæðið Fjaðrárgljúfur.
Svæðinu var lokað tímabundið vegna vætutíðar og ágangs. Nú eru aðstæður betri eins og sjá má á mynd með fréttinni.
Stofnunin vill beina því til gesta að notast alfarið við merktar gönguleiðir og fara aldrei yfir girðingar eða inn á svæði þar sem umferð er takmörkuð vegna viðkvæms gróðurs eða dýralífs.