![Formaður nemendaráðs Laugalandsskóla, Guðný Salvör Hannesdóttir frá Arnkötlustöðum veitti gjafabréfinu viðtöku. Ljósmynd/Aðsend Formaður nemendaráðs Laugalandsskóla, Guðný Salvör Hannesdóttir frá Arnkötlustöðum veitti gjafabréfinu viðtöku. Ljósmynd/Aðsend](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/12/Laugalandsskoli.jpg?resize=696%2C431&ssl=1)
Í tilefni af 60 ára afmæli Laugalandsskóla gáfu Foreldrafélag Laugalandsskóla, Kvenfélagið Framtíðin, Kvenfélagið Eining og Kvenfélagið Lóa allan búnað fyrir nýjan frisbígolfvöll sem settur verður upp á Laugalandi.
Gjöfin var afhent í afmælisveislunni sem haldin var þann 8. desember síðastliðinn.
Völlurinn verður settur upp með vorinu og mun hann þá nýtast nemendum og starfsfólki Laugalandsskóla, nemendum og starfsfólki leikskólans á Laugalandi, íbúum sveitarfélaganna í kring, sem og gestum og gangandi.