![Umferðarslys á Suðurlandsvegi við Þórustaðanámu Umferðarslys á Suðurlandsvegi við Þórustaðanámu](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/07/Lögregla.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Árekstur varð á Suðurlandsvegi á móts við Þórustaðanámu undir Ingólfsfjalli milli vörubifreiðar og fólksbifreiðar sem ekið var í sömu átt kl. 11:19 í morgun. Ökumaður og farþegi í fólksbílnum voru flutt til skoðunar á HSU en meiðsl eru talin minniháttar. Bæði ökutækin eru töluvert skemmd. Loka þurfti vegi meðan ökutæki voru fjarlægð en nú er búið að opna á ný.