![Kvenfélag Þorlákshafnar gaf peningagjöf til HSU Kvenfélag Þorlákshafnar gaf peningagjöf til HSU](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/12/hsu_gjof_torlakshofn.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Þann 14. nóvember sl. mættu vaskar konur frá Kvenfélagi Þorlákshafnar, þær Svava og Fjóla, á heilsugæsluna í Þorlákshöfn og afhentu formlega 200.000 króna peningagjöf.
Peningagjöfin hefur þegar verið nýtt til að endurnýja búnað og aðstöðu ungbarnaeftirlitsins í Þorlákshöfn og til kaupa á nýrri ungbarnavigt og lengdarmæli.
Allar kvenfélagskonur í Kvenfélagi Þorlákshafnar fá hugheilar þakkir fyrir alla gjafmildina, endalausa góðvild og velvilja í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.