-1.1 C
Selfoss

Eldur kom upp í bíl á Selfossi í nótt

Vinsælast

Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu á Selfossi voru boðaðir út rétt eftir klukkan eitt í nótt vegna elds í bifreið. Bifreiðin stóð á bílaplani fyrir utan veitingarstað á Austurvegi á Selfossi.

Mikill eldur var í bifreiðinni er slökkviliðsmenn komu á vettvang en greiðlega gekk að slökkva eldinn.

Bifreiðin er gjörónýt eftir brunann. Eldsupptök eru óljós á þessari stundu.

Frétt af heimasíðu Brunavarna Árnessýslu.

Nýjar fréttir