![Útvörðurinn sýndur í Bíóhúsinu Útvörðurinn sýndur í Bíóhúsinu](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/utvordurinn2.jpg?fit=768%2C541&ssl=1)
Í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands er boðið á sýningar á heimildamyndina Útvörðurinn í Bíóhúsinu Selfossi. Útvörðurinn er mynd um Sigurður Pálsson bónda, safn- og vitavörð á Baugsstöðum. Sigurður er samofinn sögu staðarins, Rjómabúinu og Knarrarósvita. Hann er fróður á sagnaslóðum við ströndina frá Loftstaðarhóli að Fornu-Baugsstöðum.
Í myndinni er sagt frá, sjósókn frá Loftstaðasandi, Þuríði formanni, Flóaáveitunni og sjávarflóðum á Eyrum. Þá er og sagt frá landnámsmönnum, þjóðtrúnni og Galdra-Ögmundi. Einnig koma stríðsárin og Kaldaðarnesflugvöllur við sögu, sem og vormenn Íslands og mannlífið í Flóanum.
Kvikmyndin er eftir Gunnar Sigurgeirsson. Tónlistin er eftir Hilmar Örn Hilmarsson og kvæðamaður og þulur er Steindór Andersen.
Sýningardagar eru 1., 2. og 3. desember nk. kl. 17:00 alla sýningardagana. Frítt er inn á allar sýningarnar.